Ágætu eldri kylfingar

Nú hafa verið sendir út greiðsluseðlar fyrir styrktargjaldi til LEK. Á aðalfundi í desember var samþykkt að gjaldið verði kr. 1.500. þetta árið. Þrátt fyrir að það sé LEK-félögum í sjálfsvald sett hvort þeir styrkja LEK á þennan hátt þá hafa það verið fjölmargir sem greiða þetta gjald ár hvert. Er óhætt að segja það þetta er mjög mikilvægur þáttur hvað fjármál LEK varðar.

Í ár eru greiðsluseðlar sendir út í samvinnu við MP-banka sem er nú aðal styrktaraðili LEK. Með greiðsluseðlunum fylgdi nýjasta fréttabréf LEK og þar er að finna margar gagnlegar upplýsingar fyrir LEK-félaga. M.a. hvað bíður þeirra sem greiða styrktargjaldið fyrir 1. júní.

Sjá nýjasta fréttabréfið frá LEK og MP banka