LEK félagsaðild

Allir kylfingar í golfklúbbum landsins, konur 50 ára og eldri og karlar 55 ára, verða sjálfkrafa félagar í LEK

Því fylgir ekkert sérstakt félagsgjald en LEK hefur undanfarin ár sent golfurum sem eru LEK félagar greiðsluseðil og boðið uppá að greiða styrktarfélagagjald.

Það er hverjum í sjálfsvald sett hvort hann greiðir seðilinn eða ekki.

Á aðalfundi LEK þann 28. nóvember 2010 var ákveðið  að styrktarfélagagjaldið yrði kr. 1.500 fyrir árið 2011.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um fyrirkomulag á innheimtu  styrktarfélagagjaldanna  en vænta má þess að það verði gert í marsmánuði.
Þær tekjur sem LEK hefur haft af styrktarfélagagjöldunum á undanförnum árum hafa verið dágóð upphæð, sem hefur skipt miklu máli í rekstri samtakanna. Því metur stjórn LEK það mikils ef eldri kylfingar sjá sér fært að greiða þessa upphæð og efla þannig starfsemi LEK enn frekar.