Archive for febrúar, 2012
Nú er mótanefnd LEK undir forystu Sveins Sveinssonr komin vel á veg með mótaskrá LEK fyrir komandi golfvertíð. Ákvörðun um eftirtalda velli og dagsetningar fyrir fjögur viðmiðunarmót liggur fyrir:
Hólmsvellur í Leiru 20. maí
Hvaleyrarvöllur í Hafnarfirði 2. júní
Hamarsvöllur í Borgarnesi 23. júní
Garðavöllur á Akranesi 24. júní
Eftir er að ákveða með tvö viðmiðunarmót í viðbót á fyrri hluta árs og mun það vonandi liggja fyrir fljótlega.
Nú eru golfklúbbarnir hver af öðrum að ljúka við mótaskrár sínar og þá mun LEK ljúka samningum við þá klúbba sem halda munu viðmiðunarmótin með LEK. Líklegast mun Hamarsvöllur verða inn í myndinni og þá munu LEK félagar fá að glíma við hina frábæru ,,eyju“ holu sem sést hér á myndinni fyrir ofan.
Heimasíðan hefur heyrt í nokkrum LEK félögum sem bíða spenntir eftir að sjá mótaskrána og vonandi verður biðin ekki mjög löng. Sömuleiðis höfum við heyrt frá félögum sem eru á fullu við að undirbúa sig fyrir komandi golfvertið og er það mjög ánægjulegt að heyra.









