Leit
Næstu mót
    No dates present

Það voru glimrandi aðstæður í Leirunni þegar fyrsti ráshópur lagði af stað kl. 7:50 nú í morgun í fyrsta viðmiðunarmótinu í LEK-MP-banka mótaröðinni. Um ræsingu sáu þeir Heimir og Hafsteinn og inni í golfskálanum hélt Gunnar um mótstjórnina.

Gísli Blöndal, Þorsteinn Geirharðsson, Hannes Eyvindsson og Jón H. Karlsson

Ræsar mótsins Heimir og Hafsteinn

Gunnar mótstjóri og dómari mótsins

Þorbjörg Jóna Harðardóttir, Ásgerður Sverrisdóttir og Björg Þórarinsdóttir

Fleiri myndir hér.

Fimmta viðmiðunarmót LEK og MP-banka vegna vals á landsliðum LEK 2012 verður haldið á Hólmsvelli í Leiru sunnudaginn 20. maí n.k. og standa þá eftir fimm mót sem verða haldin á tímabilinu 26. maí til 24. júní. Á þessu ári mun LEK senda fjögur landslið til keppni á Evrópumótum. Í flokki karla 55 ára og eldri fara tvö sex manna lið til keppni í Zagreb í Króatíu dagana 8. – 12. júlí. Keppir A-lið án forgjafar og B-lið með forgjöf. Í flokki kvenna 50 ára og eldri keppir eitt sex manna lið án forgjafar og fer það mót fram í Lugano í Sviss dagana 4. – 8. september. Í flokki karla 70 ára og eldri fer eitt sex manna lið til Wachau í Austurríki dagana 7. – 10. ágúst og keppir  í punktakeppni með forgjöf. Með hliðsjón af ofanskráðu mun stigaútreikningur úr viðmiðunarmótunum helgast af vali í þessi landslið og munu eftirtaldar stigatöflur verða birtar hér á heimasíðunni eins fljótt og mögulegt er eftir hvert mót. Eins og reglur LEK segja fyrir ræður samanlagður stigafjöldi úr fimm bestu mótunum röð keppenda á listunum.

Stigatöflurnar verða sem hér segir:

Karlar 55+

1. Samanlagður stigafjöldi í keppni í höggleik án forgjafar.

2. Samanlagður stigafjöldi í keppni í höggleik með forgjöf.

Konur 50+

1. Samanlagður stigafjöldi í keppni í höggleik án forgjafar.

Karlar 70+

1. Samanlagður stigafjöldi í punktakeppni í með forgjöf.

Sjá nánar í reglum um viðmiðunarmót 2012.

Sjá nánar reglur um val á landsliðum 2012.

Stigaútreikningur 2012.

 

Landslið konur 50+ árið 2011